Að flýta sér hægt og spara gífuryrðin

25/06/2019
Deila

Í kjölfar frétta mánudaginn 24. júní 2019 um kærur hluta landeigenda Drangavíkur vegna deiliskipulags Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði á Ströndum vill VesturVerk ehf koma eftirfarandi á framfæri:

Í þau 13 ár sem VesturVerk hefur haft Hvalárvirkjun í undirbúningi hafa engar vísbendingar borist um að landamerki í Ófeigsfirði séu með þeim hætti sem hluti af landeigendum Drangavíkur lýsa í kæru sinni. Sá liður kærunnar kemur því forsvarsmönnum VesturVerks í opna skjöldu og er ekki í samræmi við þau landamerkjabréf sem unnið hefur verið eftir.

Furðulegt sinnuleysi

Það sætir furðu að í undirbúnings- og skipulagsferli vegna Hvalárvirkjunar, sem spannar á annan áratug, skuli landeigendur ekki hafa vakið fyrr máls á meintu misræmi í landamerkjaskráningu. Einnig mætti ætla að opinberar eftirlitsstofnanir hefðu bent á slíkt misræmi, sé það fyrir hendi. Þar til bær yfirvöld þurfa nú að skera úr um innihald kærunnar en VesturVerk mun á næstu dögum fara yfir þá nærri 100 liði sem kæran birtir.

VesturVerk hefur í einu og öllu fylgt þeim lögum og reglum sem gilda um skipulags- og undirbúningsferli mannvirkja á borð við vatnsaflsvirkjanir. Þetta er bæði langt og strangt ferli en verkefnið hefur á öllum stigum máls verið staðfest af opinberum aðilum, þar á meðal Skipulagsstofnun, og nú síðast með framkvæmdaleyfi frá sveitarfélaginu Árneshreppi vegna undirbúningsrannsókna.

Umsvifalaus viðbrögð Landverndar

Það er umhugsunarvert hvernig umhverfissamtökin Landvernd brugðust umsvifalaust við fréttum gærdagsins af kærumálinu. Í fréttatilkynningu frá samtökunum sem birtist í beinu framhaldi af fréttum um kæruna eru gífuryrðin og ávirðingarnar slíkar að ekki verður hjá því komist að bregðast við. Landvernd eru fjölmenn samtök sem að stórum hluta eru rekin af opinberu fé. Um 27 milljónir króna af skattfé ríkisins runnu til samtakanna árið 2017 og því verður að gera þá kröfu að hófstillingar sé gætt og sannleiksgildi virt í málflutningi samtakanna.

Alvarlegar ásakanir um lögbrot

Í fréttatilkynningunni segir m.a. „Hvalárvirkjun er fjárhagslega óábyrg og aðstandendur og stuðningsmenn hennar virða lög, reglur og faglega ferla að vettugi.“ Fyrir utan dylgjur um arðsemi verkefnisins, sem Landvernd hefur engar forsendur til að leggja mat á, er fyrirtækið VesturVerk sakað um að hafa gerst brotlegt við lög og reglur í landinu. Það eru alvarlegar ásakanir. Landvernd hlýtur að þurfa að færa rök fyrir máli sínu og tiltaka hvaða lög, reglur eða faglegir ferlar hafa verið virtir að vettugi í undirbúningi að virkjun Hvalár.

Meirihluti landsmanna vill nýta og njóta

Vissulega eru skiptar skoðanir um það með hvaða hætti við Íslendingar högum sambúðinni við náttúru landsins okkar. Sumir vilja nýta, aðrir vilja njóta en þorri landsmanna vill gera hvort tveggja með sjálfbærni að leiðarljósi. Það sýna skoðanakannanir á landsvísu. En í allri þeirri mikilvægu umræðu sem fram fer um þessi mál verður það að vera lágmarkskrafa að satt og rétt sé sagt frá.

Horft út yfir höfnina í Norðurfirði í Árneshreppi. Ljósmynd: Birna Lárusdóttir.
Horft út yfir höfnina í Norðurfirði í Árneshreppi. Ljósmynd: Birna Lárusdóttir.