Þarfir nærsamfélagsins í forgrunni

27/02/2018
Deila

Miðstjórn Samiðnar, sambands iðnfélaga, sendi nýverið frá sér ályktun þess efnis að við mat á virkjunarkostum við framleiðslu á rafmagni sé nauðsynlegt að hafa þarfir nærsamfélagsins sem mest í forgrunni. Vernd náttúru og virðing fyrir umverfinu eigi að vera grundvallaratriði við mannvirkjagerð og auðlindanýtingu en áríðandi sé að þörfum nærsamfélagsins sé ekki stillt upp sem andstæðu við náttúruvernd.

Í ályktuninni segir ennfremur: „Sterkir innviðir eru forsenda fyrir framþróun sveitarfélaga og byggð í landinu. Í því felst m.a. að aðgangur að rafmagni sé tryggur, auk góðra samgangna. Til að minni samfélög geti staðist samkeppni um fólk og boðið upp á sambærileg tækifæri og þau stærri verða þau að geta treyst á þessar grunnstoðir nútímasamfélags. Víða á Íslandi skortir verulega á að skilyrði um orkuöryggi og öryggi í samgöngum séu uppfyllt. Vernd náttúrunnar og virðing fyrir umhverfinu á að vera grundvallaratriði þegar kemur að mannvirkjagerð og auðlindanýtingu. Það er hins vegar áríðandi að þörfum nærsamfélagsins sé ekki stillt upp sem andstæðu við náttúruvernd. Með vönduðum undirbúningi og skilvirku samráði við almenning er í langflestum tilvikum hægt að finna lausnir þar sem vernd náttúru og hófstillt nýting lands og auðlinda í þágu byggðanna fara vel saman."

Ályktunin var samþykkt á fundi miðstjórnar Samiðnar þann 15. febrúar s.l. Samiðn er landssamband stéttarfélaga sem varð til við samruna Málm- og skipasmiðasambandi Íslands og Sambands byggingamanna. Aðild að sambandinu á starfsfólk í bílgreinum, hársnyrtigreinum, málmtæknigreinum, tækniteiknun, byggingagreinum, garðyrkju og skipasmíðum. 

Miðstjórn Samiðnar ályktaði um virkjunarkosti og þarfir nærsamfélagsins á fundi sínum 15. febrúar s.l.
Miðstjórn Samiðnar ályktaði um virkjunarkosti og þarfir nærsamfélagsins á fundi sínum 15. febrúar s.l.